Bloggari
Yndislega barnið mitt :)
24.11.2007 20:04:54 / Thelma

Nei hætti´ði nú alveg ....

ég bara sökka feitt í þessu, gleymi þessu bara.

Enda er heldur ekkert mikið að gerast einhvernveginn og þá verða færslunar svo þunnar og ekkert að segja .... Ég er búin að kaupa meira en helmingin af jólagjöfunum OG pakka þeim inn... ó já! Ég ætla mér sko að eiga desember jólagjafafrían , bara að drekka jólaöl og skrifa jólakort og svona... mmmm geggjað.

Marko minn braggast vel og er með frekju á háu stigi þessa dagana, ógurlega skemmtilegt fyrir annars mjög svo skapstóra og freka mömmu ... ég bara veit stundum ekki hvernig ég á að taka á honum, mig langar að garga, en það er víst ekki í boði. Þarf að fara í svona parenting 101

Hann er samt svo fyndinn, við vorum að rífast eitthvað um daginn, og ég nennti ekki að hlusta á þetta röfl í honum, svo ég hreytti í hann NEI MAÐUR ... og hann svaraði um hæl JÚ KONA !

Annars lítið í fréttum´skurnar ....

Lov jú

 ó já, og ég er ófrísk ;) á að eiga 25 maí 2008


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 19:33:02 / Thelma

Afslöppun og þreyta

Hvernig stendur á því þegar maður fer heila helgi í bústað, einmitt til þess eins að slaka á að maður kemur helmingi þreyttari heim? Ég allavega er alveg búin á því .... En mikið var þetta notó og skemmtileg ferð. Marko var líka ofsalega fegin að fá mömmuna sína heim.

Þessa dagana talar hann ekki um annað en að fá að vera einn heima! Við Hrvoje erum að spá í að fara í bíó eitt kvöldið og láta verða af þessari ósk hans, hann gæti þá bara pantað pizzu og horft á sjónvarpið og farið svo sjálfur að sofa... hann yrði ábyggilega ógurlega sáttur ... haldið þið það ekki annars??? Las það einmitt í barnasálfræðibók að maður ætti að ýta undir sjálfstæði barnanna sinna, get ekki betur séð en að ég sé nú að gera það með þessu, plús það að ég kæmist þá útí bíó ;)

Ég er illa sátt við myrkrið þessa dagana, ég elska skammdegið og allt sem því fylgir, jólin, snjórinn, kuldinn, jólin, piparkökur, kertaljós, ullasokkar, jólin, kók, nammi, sjónvarpsgláp, jólin:)

En já, ekkert meira að segja að sinni

 

Tjáááá


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 01:10:46 / Thelma

Jólin, jólin allstaðar ...?!?!

Jiii afsakið elskurnar, ég bara einhvern veginn var búin að ákveða það að enginn hefði svo sem áhuga á þessu pári að ég "gafst" upp aftur. En eftir skammir þá er ég mætt ;)

Ég er að tapa mér í jólaspenning þessa dagana, enda var ég seinustu jól útí Króatíu og þá fæ ég alltaf tvöfaldan skammt af íslenskujólastemningarfíling ;) Hittumst september grúbban áðan að gera jól í skókassa (www.skokassar.net) Rosa gaman og gott að gera góðverk fyrir jólin. Líka alltaf gaman að hitta grúbbuna mína, svo skemmtilegar stúlkur.

Ég er að mygla á vinnunni minni, leiðinlegum kúnnum, leiðinlegum vinnustað og hundleiðinlegum kúnnum... hvað er málið með þreytt og illa stemmt fólk í dag? Voðalega getur fólk verið dónalegt, shit maður. Jæja ég ætla að láta mig dreyma um sumarbústaðaferðina sem verður farin næstu helgi "húsmæður í orlofi" Ég, mamma, Sibba, María, Árnný og Halla frænka ætlum í náttfatarhelgi dauðans með spilum og látum ... jii get ekki beðið. Það er náttúrlega engum börnum boðið í þessa ferð.

Marko draumur í dós er yndislegur, skemmtilegur aldur sem hann er á. Hann vaknaði um miðja nótt í seinustu viku grátandi, hann vildi kúra í mömmubóli. Ég ákvað að spyrja hann nú afhverju hann hefði vaknað svona illa, hvort hann hefði dreymti illa? Jáhhhhhhh, nú hvað dreymdi þig elskan? ........löng lööööng löööööng þögn .... "UGLU" sagði hann með áhyggjusvip ... nú? Og hvað gerði hún ??? "Hún sló mig!" haha,  það var svo erfitt að hlæja ekki.

Annars er ég andlaus, veit ekki alveg hvað ég á að blogga um ... ætla að finna eitthvað betra næst

 

p.s. og já takk fyrir kveðjurnar elskurnar , keep up the good work :) Minni líka á gestabókina hans Marko Daníels.

p.p.s Og Hildur mín .... jáhhhh, byrja þú líka að blogga ... vertu memm ;)

Sijú píbúll :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 00:01:29 / Thelma

Týnda dóttirin snýr aftur!

Ótrúlegt en satt, þá ákvað ég að skrifa eina færlsu HAHAHA. Það eru nú ekki margir sem geta státað sig af því kæru vinir að fá sér pásu í meira en ár og koma svo sterkir inn aftur:)

Já, Marko Daníel minn er hættur með bleyju. Hann er náttúrlega snillingur á heimsvísu, sem sannaðist með eindæmum þegar ég mútaði honum með verðlaunum ef hann væri til í að pissa á klósettið á leikskólanum (sem hann hefur hingað til ekki verið tilbúinn til að gera) og vera bleyjulaus, jújú minn var nú til í þann samning, gekk vel og viti menn mamman var svo stolt og ánægð að hann fékk að velja sér verðlaun í Hagkaup samdægurs eins og um var samið, enda ekki þekkt fyrir annað en að efna mín loforð. Daginn eftir er farið í leikskólann bleyjulaus, já mamma mín bless bless og allt það. Svo þegar mamman var horfin á braut var fóstrunum tjáð að hann þyrfti nú ekkert að fara á klósettið þar sem hann væri búinn að fá verðlaunin! :haha:

Þessa dagana er ég nú samt að tussast heima veik og ekki mikið í fréttum hjá okkur hér. En vá það er nú dálítið gaman að blogga það verður að segjast. Þá er bara spurning hvort nokkur komi til með að kommenta hjá manni hehe, það er nefnilega dálítið langt síðan einhver leit hingað inn ;)

 

kv Thelms


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 07:33:08 / Thelma

Útdautt helvíti

Æj já, ég held að bloggið sé að líða undir lok .........................

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 13:53:53 / Thelma

Sumarið er tíminn .....

vá eru þið að trúa því að sumarið sé í raun bara búið ??? 8| glatað, það var í raun ekkert sumar, nokkrir örfáir dagar sem var sól og við Íslendingar sættum okkur við lítið, það er... ef það er smá sólarglæta, örlítið gola og ísskáps kuldi ..s.s. 4 c° þá köllum við það voða gott veður, skellum okkur í pils og stuttbuxur og hlaupum út í ísbúð og sund !!! .... smart !

En já, annars er ég voða dugleg að æfa aftur, tók mér ansi laaaaaaaaaaanga pásu eftir að ég kom frá Benidorm, en sá svo í brúðakjólamátuninni að þetta gekk ekki upp ! ... Skellti mér á góða æfingu í gær, fór svo út að labba með Marko í kerru í klukkutíma og svo eftir að hann vaknaði tókum við góðan stóran göngutúr bara tvö á fjórum jafnfljótum í gegnum grasagarðinn og svona, ooohhh það var geggjað :) ... Hann er svo duglegur að labba og hlaupa, en ansi lélegur í að hlýða þegar ég segi honum að koma hingað eða fara heim ... hann ætlar sér ekkert að gera það ...

Anna, Birta og Stella verða hjá mér yfir helgina, við ætlum að hafa það voðalega kósý og notó saman. Ætla að leigja handa þeim spólu og spila við þær.... voða gaman.

Heyrumst

kv Thelma


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 14:55:48 / Thelma

ahhhhh

æj maður nennir orðið ekkert að blogga lengur, hef það á tilfinningunni að það sé ekki "inn" í dag .... en ok vegna masssssssa ;) þrýstings frá samfélaginu skal ég láta undan og pára hér eins og eitt blogg eða svo !!!

Tengdaforeldrar mínir eru hér, og það er ekkert smá ljúft og fínt ... þeir eru bestu tengdaforeldrar sem hægt er að hugsa sér held ég, enda sagði tengdamamma mín eitt sinn það er svo gott að eiga hana Thelmu að, þar sem við tölum heldur ekki sama tungumálið þá erum við alltaf kurteisar og ljúfar og rífumst aldrei HAHAHAHAH nokkuð góður punktur hjá henni :)

Ég fór í Tvö hjörtu í dag ásamt mömmu og tengamömmu og skutlaði mér í nokkra brúðakjóla, það var gaman, en ég sá það svart á hvítu að ég verð að grenna mig ... var að spá í að biðja mömmu að sparka mér út í World Class og sækja mig aftur í maí 2007 ! ...

Marko er alltaf á leikskólanum, gengur mjög vel fyrir utan mjög sáran grát á morgnana þegar við segjum bless, og svo passar hann sig á því að fara alltaf að gráta þegar við sækjum hann svona til að sýna hversu AGALEGT það hafi verið þarna, þótt að ég hafi nú staðið í glugganum og horft á barnið leika sér kampakátt og veit alveg að sú var ekki raunin að hann hafi verið sár og leiður .... hehehe

Jæja þetta er gott í bili ...lov jú píbúll

Thelma


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 16:18:57 / Thelma

þunn !

Kræst í dag er þynnkudagur dauðans, þar sem ég innbyrgði ógrynni af skotum og tæpar 2 hvítvínsflöskur í gærkveldi og var vægast sagt blekuð ! ... Afmæli var haldið hjá Drífu minni sem náði þeim merka áfanga að verða 22 ára stúlkukind ;) Þvílíkar kræsingar og flottheit til að seðja landann af hálfu Fríðu (mömmu Drífu, hún átti náttúrlega líka hrós skilið í gær fyrir að hafa pungað henni Dríbbs út fyrir allmörgum árum ;) ) , mikið var þetta flott. Og haldið þið að mín hafi ekki borðað papriku í gær ... vafið inn í tortillu ásamt kjúlla og fleiru ... namminamm ... en þetta var svona once in a life time fílingur, ég er ekkert að fara fá mér eitt stykki grænmeti í dag  !

Svo kom pabbi á Hummer limmunni að sækja afmælisbarnið og co. Drífu til mikillar ánægju, enda illa flottur kaggi ! Niðrí bæ var haldið á Pravda og dansað frá sér allt vit. Ó já ... þetta var mjög skemmtilegt kvöld, við Hildur ultum svo út úr leigubíl um sjö leytið og skriðum upp í rúmið mitt ;)

ELSKU DRÍFA, TAKK FYRIR MIG ENN OG AFTUR OG TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ :)    *smúts*

kv Thelma


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 12:59:14 / Thelma

Jeminn .. illa gott veður í dag :)

Ég fór með tengdamömmu minni í Hagkaup áðan, þegar við keyrðum svo upp Álfheimana þá fór hún að tala um hvað það væri gott veður úti en mikið fannst henni skrítið að sjá svona fátt fólk á ferli, nema jú einn mann sem var á gangi þarna í rólegheitunum ... ég kíki á manninn og fór að skellihlæja... því þetta var jú tengdapabbi minn í göngutúr :) ... hahaha, mikið hlógum við

En já, allt við það sama hér, ... á heimilinu er nú töluð króatíska í öll mál ;) ... en ég plumma mig ágætlega svo sem ... er ekkert flunkufær en næ að bjarga mér.

Á morgun fer ég svo í afmæli til Drífu minnar, þá skal sko drukkið

"Híf hopp æpti kallinn, inn með trolliðinnnnnnnnnnnnnnnnnn ..... , hann er að gera haugasjó.... inn með trolliðinnnnnnnnnnnnnnnnnnn.........."


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 17:06:41 / Thelma

Fyrsti leikskóladagur Marko ...

gekk bara ljómandi vel ... hann þekkir náttúrlega útivistasvæðið vel þar sem við Hrvoje höfum verið dugleg að fara þangað með hann að leika eftir lokun á virkum dögum og um helgar, honum fannst bara mest spennandi að sjá svona marga krakka á svæðinu og var mjög upptekinn við að hlaupa út um allt og segja hæææjjjj við alla. Svo fórum við aðeins inn með Ástu sem er með hann í aðlögun og þar fékk hann að leika sér með allt dótið, en það var líka erfitt að fá hann í burtu, hann vildi bara leika sér áfram .... :)

Það var líka voða fyndið þegar Erik (sonur Tomislav og Teddu) kom á blússandi hraða á hjóli og datt og í miðju falli ... og þá meina í loftinu ... heyrðist ééééég meiddi mig EKKI (þegar hann datt svo ) .... hhahah, við Hrvoje hlóum voða mikið, hann sagði svo bara hæ við okkur og rauk af stað :)

Á morgun förum við 9-11 og prófum þá að skilja hann aðeins eftir, æj já það er svo skrítið þegar barnið manns stækkar, manni langar það svo , en langar svo líka í hvítvoðunginn sinn aftur sem var svo ómáta háður manni og maður gat verið með hann í fanginu allan daginn og sofið með hann á mömmubringu ... en ... nú er tími til að sleppa smá af honum hendinni og leyfa honum að leika sér allan daginn með öðrum börnum ;)

hahhaha, ein voða væmin ungamamma


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 08:33:49 / Thelma

Mér finnst rigningin góð ... lalalalaaaa ooooooóóóóó

Úffffffffff hvað er í gangi á þessu skítaskeri okkar, það voru eingöngu 6 þurrir dagar í júní ... ???? SEX ???? hvað er í gangi ???? Spurning hvort allir Íslendingar ættu að mótmæla og færa landið á Fiji eyjar , klárlega er þetta ekki málið allavega.

og hér vill maður vera... !

Marko byrjar á leikskóla á mánudaginn og tengdó kemur í heimsókn á þriðjudaginn og verða í þrjár vikur, ég hlakka rosa til ...

Eru allir hættir að kommenta hér ? Er blogg að deyja út og á maður að fara hætta þessari vitleysu ???


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 09:41:42 / Thelma

Komin á klakann

Æj já, mikið er alltaf gott að vera komin heim, knúsa kallinn og koma lífinu í rétt horf. Alltaf verð ég jafn hissa á því hvernig er mögulegt að vakna í einu landi og sama dag vera komin í annað land... ótrúlegt alveg hreint. Þetta var geggjuð ferð, ég hvíldist vel og át á mig gat, nú taka við æfingar til að skrapa af manni hamborgara frönsku átið ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 21:33:52 / Thelma

Sakni sakn

Jaeja tha fer madur ad koma heim, mikid verdur thad ljuft, er farin ad sakna kallsins mins allverulega ... For i dag og tapadi mer nett i H&M ... er svo geggjud bud .. heheh ... Annars gengur lifid her a Spani sinn vanagang ...

Farin ad sakna ykkar dullur .. .

kv Thelma


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 20:29:07 / Thelma

Skadbrennt helviti ....

Almattugur madur minn lifandi ... mer tokst ad brenna mig illilega :^) I gaer a baki og oxlum og i dag fra nara og nidra taer ... eg er ekki ad grinast ... SAMT bar eg a mig solarvorn :( Hvad er fokking malid ??? En annars er mjog fint her ... en nett heimthra er farin ad gera vart vid sig .... thad verdur gott ad komast heim og knusa manninn minn .... mmmm :lol:

Annars a hun Halldora min afmaeli i dag ... og vil eg nota taekifaerid og hefja her fagnadarsong henni til handa

Hun a afmaeli i dag

Syngjum fagnadarbrag

Hun a afmaeli hun Dora

Hun er 22 ara i dag

kvedja Thelma


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 21:10:13 / Thelma

Albir ... Benidorm ...

Mmm her er geggjad ad vera og eg sakna ykkar ekki rassgat ... haha

Forum a kinastad adan , bara eg, mamma, Maria og Elin Helga fraenka a medan krilin okkar voru upp a hoteli og Anna passadi Marko. Va gedveikur 8 retta matur og svo fengum vid allar hringa ad gjof i endann og thessi herlegheit kostudu um 5000 kr. Nokkud gott ... ekki beint Nings atridi her a Spani.

A morgun er thad svo tivoli og full vikudagskra her hja okkur a medan vid mamma erum med bilaleigubilana her ... JA thad er sko rett, eg er KEYRANDI a spanska visu .... na na na bu bu ... :haha:

kv Thelma solarfari


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5